sunnudagur, október 29, 2006

Iceland airwaves o.fl.

Jæja þá er komið að því að ég bloggi eftir svolitla hvíld. Eins og er þá sit ég í vinnunni og bíð eftir að það komi sýni sem ég var kölluð út fyrir, eins og vanalega gengur því eitthvað illa að komast til mín. Ég fór sem sagt á airwaves um síðustu helgi, ekkert smá gaman!!!! Ég skemmti mér konunglega að hlusta á allt sem þar fór fram. Ég sá tvær hljómsveitir sem ég ætla að fylgjast með sérstaklega en það eru Hot Club de Paris sem eru reyndar frá UK en þeir voru æðislegir eins voru Islands sem eru frá Kanada frábærir en ég skil ekki alveg hvers vegna allir voru svona hrifnir af Tilly and the Wall, mér fannst þetta nú bara brandari. Allir hafa nú misjafnan smekk en fyrr má nú vera.... Kaiser Chief voru auðvita frábærir, auðvita.... Það voru bara svo mikið af góðum hljómsveitum, bara alveg rosalega gaman!!! Síðan þá er ég búin að vera í vinnunni og geri lítið annað en það og ég bý í bílnum sem á alls ekki við mig þarf að vera fljót að safna mér fyrir innborgun.... Ég er að fara út að klára það sem þarf að gera til þess að ég geti birt greinar um það sem ég var að gera úti í Englandi og ég geri það einhvern tíma eftir áramót en hvað ég verð lengi að þessu veit ég ekki og kemur ekki ljós ábyggilega fyrr en ég byrja á þessu. Hlakka samt til að koma og vera út í London. Það verður ógeðslega gaman. Annars lítið að frétta, bið að heilsa

miðvikudagur, október 18, 2006

Dugleg ehehm

Jæja það er margt sem búið að gerast núna á stuttum tíma. Ég er orðin formaður Lúðrasveitar Verkalýðsins, komin í skemmtinefnd í Borgarkórnum, er búin að koma mér í 2 rannsóknarverkefni og þarf að skrifa grein.... Ég er duglega að koma mér í hluti sem sagt, veit samt ekki alveg hvort ég er að koma mér í meira en ég get gert en það á bara eftir að koma í ljós. Ég er reyndar líka að spá í að reyna að komast í líkamsrækt svona inn á milli þar sem mér langar að komast í form og fara að gera eitthvað af viti í þeim málum. Ég ætla nú svona aðeins að sjá til hvernig allt hitt gengur fyrst áður en ég fer að gera meira. Svo eru fréttirnar hún Freyja lét loksins verða af því að kaupa miða á Icelandic airwaves eftir mörg ár að langa og ekki fara. Þetta byrjar allt saman í kvöld á Gauknum (við ákváðum að byrja þar) og heldur svo áfram þangað til á sunnudaginn.... Mér hlakkar ekkert smá til enda fullt af hljómsveitum sem mig langar að heyra í bæði í fyrsta skipti og líka þær sem ég er að sjá í fyrsta skipti þó ég hafi hlusta á þær.... Jibbý það er gott og gaman að búa á Íslandi akkurat núna... Farin að sakna London smá en þetta er allt í lagi samt. Er reyndar búin að kaupa mér ferð út í Janúar til þess að verða viðstödd útskriftina og auðvita að hitta alla sem eru þarna úti og ég hef ekki séð þá í langan tíma.
Heyrumst síðar

fimmtudagur, október 05, 2006

Lífeindafræðingur M.Sc.

Halló allir,
Langaði bara að láta ykkur vita að ég er búin að ná masternum. Mér gekk ekki eins vel og ég vonaðist eftir en allt í lagi samt sem áður. Prófin drógu mig niður í einkun en ekkert við því að gera, þetta er búið og gert. Einkunnin mín var sem sagt pass with merit in research project. Vonandi er þetta bara búið, það er einhver nefnd sem á eftir að samþykkja þetta allt saman og hún hittist ekki fyrr en í Nóvember. Það er samt mjög ósennilegt að þetta breytist eitthvað þetta er bara pappírsvinna sem er eftir, þeir eru svo hrifnir af því Bretarnir....

Annars er ekkert af mér að frétta. Bara sama gamla....
Bið að heilsa ykkur

fimmtudagur, september 21, 2006

Ísland best í heimi

Núna er ég búin að vera heima i tvær vikur og ég hef svo mikið að gera að ég hef eiginlega ekki náð að anda aðmennilega síðan ég kom heim. Ég er bara búin að vera að vinna á fullu náttúrulega og gera allt sem mér langar til af því að ég get það enn þá. Ég er í kór sem er rosalega skemmtilegur og ætla ég að fara í lúðrasveitina í næstu viku og svo er auka vinnan farin að koma líka fyrst í kvöld. Hlakka ekki til að vinna svona mikið en hlakka til þess að fá peninginn sem þessi vinna hefur í för með sér, peningur sem ég þarf ekki að borga til baka með vöxtum seinna á lífsleiðinni. Jibbý. Annars líður mér ágætlega hérna á Íslandi, þó mér langi nú stundum út til London. Það er ótrúlegt hvað það er öðruvísi að búa hérna og þar. Ég var samt aldrei að gera neitt sérstakt nema einstöku sinnum en það er bara öðruvísi og sumt betra þó annað sé verra en hérna á Íslandi. Ég veit ekki alveg hvað er hlaupið í mig en mig langar ótrúlega að fara og ferðast, og nýkomin heim. Hvar endar þetta eiginlega.... Er búin að setja nokkrar ferðir á óskalistann og þarf að fara að safna til þess að ég geti skelt mér..... Það verður nú samt ekki í bráð þar sem ég er á syngjandi kúpunni eins og er en það verður fljótt að koma ef ég vinn alla þessa aukavinnu sem mér stendur til boða.
Heyrumst

miðvikudagur, september 13, 2006

Komin heim

Halló halló, ég er komin heim loksins. Ég byrjuð að vinna og það er alveg rosalega mikið að gera hérna þessa dagana og hefur víst verið lengi. Ég bý heima hjá mömmu og pabba í sveitinni svona oftast en er líka hjá Luciu og Sigga þegar mig langar til eða stelpurnar vilja hafa mig (sem ég læt eftir þeim svona oftast). Ég er hjá Gunnu á þriðjudagskvöld því förum saman í kór og svo er ég að vona að byrja líka í lúðrasveitinni og þá ætla ég að koma mér inn hjá Luciu og Sigga. Vonandi verða þau ekki þreytt á mér... Ég þarf að fara einn rúnt í vinnunni áður en ég get byrjað að taka vaktir og þá er ég búin að koma mér inn hjá en aftur hjá Luciu og Sigga. Ég á sem sagt heima alls staðar og hvergi.... Það er samt rosa gott að vera heima hjá mömmu og pabba í sveitinn með honum Lubba mínum sem er með mig í uppáhaldi núna þar sem ég nenni endalaust að klappa honum og stjana við hann eins og honum langar til. Snati hins vegar sér bara hana Fanney þar sem hann fær að fara með henni allt á hestunum sem Lubbi nennir ekki. Honum bíðst sko alveg að fara en ef hann gæti talað þá myndi hann segja flat nei. Hann snýr bara upp á sig og fer inn þegar hún fer á hestunum eitthvað nema í undantekningar tilvikum. Pési kallinn er alltaf jafn mikill hefðarköttur og er húsbóndinn á heimilinu. Hann ræður sem sagt bæði yfir mönnum og dýrum þarna. Hann er svo skemmtilegur karakter.... Það er alla vega skemmtilegt að vera aftur komin með öll þessi dýr þó svo að ég sé ekki alla daga heima. Ég á eftir að hitta alla sem langar að hitta og þá sérstaklega stelpurnar sem voru með mér í THÍ en það kemur vonandi fljótlega. Alla vega búin að hitta hana Inger á göngunum í Barnaspítalanum. Óska henni alls hins best með hann Víking og vonandi komast þau fljótlega heim. Jæja verð að halda áfram að vinna

þriðjudagur, ágúst 29, 2006

BÚIN.......

Ég er búin með ritgerðina mína.... Jey. Þarf bara að prenta hana út í 3 prenti svo að ég geti skilað henni. Ég þarf að fara og kaupa blek því að ég fattaði að þegar ég er var að byrja prenta hana, svolítið pirruð en svona er þetta bara. Tók bara ekki eftir að það vantaði. Ætla svo að skila henni á morgun ef ég mögulega get. Ég þarf að reyndar að binda hana inn en ég bíst ekki við að það taki svo langan tíman en það er samt aldrei að vita hérna í Englandi. Síðasti skiladagur er á fimmtudaginn svo að það er ekki svo slæmt ef ég næ ekki að skila henni á morgun. Mamma og Fanney eru hins vegar að koma annað kvöld þannig að það væri gott að geta skilað henni áður en þær koma svo að ég geti bara einbeitt mér að því að leika mér :). Við ætlum bara að hafa það gott hérna skoða London og versla auðvita, ég er samt búin að vera renna atls vini mínum óþvingað undanfarna daga svo að ég kaupi nú ekki mikið meira en ég hef gert nú þegar bara svona smá sem mér vantar. Svo er ég bara að koma heim...... Næsta sunnudag verður Ísland ekki samt því ég er að flytja heima ....... til mömmu og pabba svona til að byrja með en það er aldrei að vita nema að ég leyfi Reykjvíkingum eða nágranna bæjarfélögum að njóta þess að hafa mig sem íbúa. Þetta er allt að gerast, hlakka til að heyra og sjá ykkur ;)
Sjáumst....

laugardagur, ágúst 19, 2006

The end is on the horizon

Jæja núna er ég næstum búin með ritgerðina mína og er samt ekki ánægð með hana en verð bara að taka á því núna síðustu vikuna.... Lenti í því leiðinlega tilviki að vera birlað eitthvað í bjórinn minn í gær. Það er alla vega niðurstaðan sem ég og Sólveig komumst að. Drakk bara 3 bjóra og einn breezer og varð ógeðslega full að ég hélt og var komin heim klukkan 1. Ég fékk síðan black out og svaf þangað til klukkan 1:30 í dag og var þá með versta höfuðverk sem þið getið ímyndað ykkur ásamt því að vera ælandi eins og mér hafi verið borgað fyrir það þó ég hafi ekki haft neitt til þess að æla.... og önnur vanlíðan. Ekki skemmtileg reynsla og sem betur fer fór ég heim þegar ég fór heim, veit ekki alveg hvað hefði annars gerst, sérstaklega þar sem að við Sólveig vildum hitta sitthvort fólkið þannig að leiðir skildu. Ekki skil samt ekki hvernig þetta gat gerst þar sem ég hélt í bjórinn minn allan tíman... En það er bara svona stundum og ekkert gerðist nema að ég varð svona veik. Bið að heilsa ykkur